Hanný á sterkar taugar til Hornfirsku hestanna, en hún kom sem tamningarmaður í Hornafjörðinn 1987 og starfaði þar við tamningar í 26 ár, eða til ársins 2013. Á þessum tíma var enn til mikið af hornfirskum gæðingum sem hún kynntist af eigin raun og hefur leitað í alla tíð síðan.
Hross af þessu stofni eru yfirleitt mjög gæf og mannelsk að eðlisfari, en miklir persónleikar og sjálfstæðir. Oftast mjög auðveld í tamningu ef rétt er að þeim farið og þeim gefinn tími. Eykst þá viljinn hægt og bítandi og getur orðið, eins og orðað hefur verið um Blakk frá Árnanesi, “skap og fjör svo mikið, að ekki væri þörf á meiru fyrir kröfuharðan hestamann.”
Töltið er aðallinn hvað ganginn varðar, úthaldið á gangi og rýmið oft á tíðum ævintýralegt.
Lýsir Þorkell Bjarnason, fyrrverandi hrossaræktarráðunautur, því best með eftirfarandi setningu:
“Enginn maður heldur út að ferðast svo lengi, án hvíldar, að hann nálgist það að vera til frásagnar þegar viljinn fjarar út í hornfirskum viljahesti.” (Jódynur 1990)
Við höfum árum saman reynt að halda við Hornfirska stofninum eftir bestu getu, en það er einnig sannfæring okkar að gott sé að geta gripið í blóðið seinna meir þegar hrossaræktin er orðinn einn "hrærigrautur".
Helstu áhrifavaldar í okkar Hornfirsku ræktun eru feðgarnir; Ófeigur frá Hvanneyri, Flosi frá Brunnum og Gustur frá Grund.
Ræktunartilraun árið 2011
Sumarið 2011 fengum við lánaðan stóðhestinn Akk frá Vatnsleysu (hann var þá 3.vetra) og héldum undir hann hornfirskum hryssum. Hugmyndin að þessari tilraun fæddist þegar við vorum að skoða hvaða hesta við gætum notað á hornfirsku hryssurnar, en ekki er um marga hornfirska hesta að velja. Meira um þessa ræktunartilraun og afhverju Akkur varð fyrir valinu er hægt að lesa um HÉR.
Við erum svo ánægð með útkomuna að við erum enn í dag að halda Hornfirskum hryssum undir Akk og höfum sótt í gamla kynið á Vatnsleysu (sérstaklega afkomendur Báru frá Ásgeirsbrekku).
Hornfirski genabankinn
Hryssur:
Bára frá Miðfelli
F: Tígur frá Álfhólum
MF: Ófeigur frá Hvanneyri
Báru eignuðumst við árið 2012, hún var þá orðin fullorðin og ótamin, en stór og myndarleg og sýnir fallegt og rúmt brokk. Við settum hana beint undir stóðhest, enda höfum við fulla trú á ættinni og áttum einnig albróður hennar, sem var góður hestur.
Um afkvæmi Báru má lesa neðar á þessari síðu.
Bára frá Miðfelli
FF: Gustur frá Grund.
MFF: Flosi frá Brunnum.
MMF: Ófeigur frá Hvanneyri.
Gargandi Snilld er fjörug alhliða hryssa, fædd okkur. Hún er undan Musku frá Viðborðsseli sem var góð alhliðahryssa sem við áttum og svo er faðir hennar Kolskeggur frá Oddhóli. Gargandi fór í folaldseign sumarið 2014.
Kolskegg, föður Gargandi, þarf vart að kynna. Hann er Gustssonur frá Grund og var í toppbaráttunni í A-flokk um árabil.
Muska, móðir Gargandi er mikið hornfirsk. Faðir hennar er Kópur frá Mykjunesi, sem var Flosasonur frá Brunnum og móðir Musku, Raun frá Flatey, var sammæðra Skó og Fífli frá Flatey, en faðir hennar er svo Ófeigur frá Hvanneyri.
Gargandi til vinstri og Muska móðir hennar til hægri
FF: Tígur frá Álfhólum.
FMFF: Flosi frá Brunnum.
FMFM: Hrefna frá Höfn.
FMMF: Ófeigur frá Hvanneyri.
MF: Gustur frá Grund.
MMF: Flosi frá Brunnum.
Fimma er skemmtileg alhliðahryssa undan Skugga okkar frá Dynjanda og Bylgju frá Lambleiksstöðum. Hún er mjög mikill hornfirðingur, en Skuggi, faðir hennar, er undan Tígur frá Álfhólum og móðir hans er af gömlu hornfirsku blóði sem hefur m.a.a að geyma Ófeig frá Hvanneyri, Flosa frá Brunnum og Hrefnu frá Höfn.
Bylgja, móðir Fimmu var undan systkinum, Gust frá Grund og Flosadóttur frá Brunnum.
Fimma frá Dynjanda
FF: Tígur frá Álfhólum.
FMFF: Flosi frá Brunnum.
FMFM: Hrefna frá Höfn.
FMMF: Ófeigur frá Hvanneyri.
MF: Flosi frá Brunnum.
MMF: Flosi frá Brunnum.
Hæra getur án efa flokkast sem einn mest hreinræktaði núlifandi Hornfirðingurinn, en hún hefur Nökkva gamla frá Hólmi 40 sinnum í ættartré sínu. Einnig má þess geta að móðir Hæru, Kolbrá, var sammæðra Dimmu frá Miðfelli, sem er móðir Dívu (10 fyrir tölt og aðaleinkun: 8,33) og Dimmis frá Álfhólum (aðaleink: 8,29).
Hæra er viljug klárhryssa sem nú er í folaldseign.
Hæra frá Dynjanda, sem er með Nökkva gamla frá Hólmi um 40 sinnum í ættartrénu sínu.
Hanný frá Þúfu
FF: Gustur frá Grund
FFF: Flosi frá Brunnum
MF: Gustur frá Grund
MFF: Flosi frá Brunnum
MMF: Flosi frá Brunnum
Hanný er skyldleikarætkuð út af þeim feðgum Gusti frá Grund og Flosa frá Brunnum. Hún er sjálf undan tveimur Gustsbörnum og móðir hennar er undan tveimur Flosabörnum.
Hanný er smá en kraftmikil og hágeng.
Hanný er sammæðra Fimmu og Þrándi.
Hanný og Hanný
F: Byr frá Mykjunesi
M: Apríl frá Árnanesi (hreinræktuð af gamla Árnanes kyninu)
FMF: Skór frá Flatey
FMMF: Ófeigur frá Hvanneyri
Edda er mikið hornfirsk ræktunarmeri úr gamla Árnanes-Stofninum, en móðir hennar er hrænræktuð af því kyni.
Faðir hennar er svo Byr frá Mykjunesi 2 sem hefur m.a. Skó frá Flatey sem FMF og Ófeig frá Hvanneyri sem FMMF.
![]() |
Edda frá Hlemmiskeiði 1
F: Moli frá Skriðu
FFMMM: Irpa frá Kyljuholti
MFF: Fífill frá Flatey
MFMF: Ófeigur frá Hvanneyri
Stjarna er undan Mola frá Skriðu, Glampasyni og mikið hornfirsk í móðuætt. Hún hefur Fífil frá Flatey sem MFF, Ófeig frá Hvanneyri sem MFMF og svo aftar í ættartrénu má meðal annars finna Nökkva gamla frá Hólmi.
![]() | ![]() |
Stjarna frá Runnum
Melkorka frá Miðfelli, fædd 2012
F: Akkur frá Vatnsleysu
MMF: Ófeigur frá Hvanneyri (8,55)
Myndarleg og viljug alhliðahryssa sem er úr fyrsta árganginum undan Akki frá Vatnsleysu og Hornfirskum hryssum (sjá ofar, ræktunartilraun 2011).
![]() | ![]() |
Melkorka frá Miðfelli
Hanna frá Hindisvík, fædd 2014
F: Puntur frá Vatnsleysu
M: Bára frá Miðfelli
Falleg og efnileg alhliðahryssa.
Hanna er úr svipaðri blöndu og Akks afkvæmin okkar hér að ofan, en hún er undan Hornfirskri hryssu og Punti frá Vatnsleysu. Þegar ættartré Punts er skoðað má víða í því finna Hornfirskt blóð, sérstaklega þegar aftar er að gáð. Má þar nefna:
MMF Skór frá Flatey, MMMF: Nökkvi frá Hólmi, MFMMMF: Hóla Jarpur frá Hólum, MFMMMMF: Skuggi frá Bjarnanesi, MFFFMFF: Nökkvi frá Hólmi og FFFMFF: Nökkvi frá Hómi.
Hanna frá Hindisvík
Tryppi í uppvexti:
Djörfung frá Hindisvík, fædd 2015
F: Akkur frá Vatnsleysu
M: Gargandi-Snilld frá Dynjanda
Djörfung frá Hindisvík
Hrefna frá Hindisvík, fædd 2016
F: Akkur frá Vatnsleysu
M: Bára frá Miðfelli
Hrefna frá Hindisvík
Mön frá Hindisvík, fædd 2017
F: Nökkvi frá Syðra-Skörðugili
M: Gargandi-Snilld frá Dynjanda
Mön er undan hinni hornfisku Gargandi-Snilld og Landsmótssigurvegaranum Nökkva frá Syðra-Skörðugili. Þegar ættartré Nökkva er skoðað finnst töluvert af hornfirsku blóði. Hann er líka undan Glampadóttur frá Vatnsleysu þannig að það er ekki langt í Báru (Hornafjörður x Lýsingur).
Mön frá Hindisvík
Herdís frá Hindisvík, fædd 2019
F: Akkur frá Vatnsleysu
M: Hæra frá Dynjanda
![]() |
Hera frá Hindisvík, fædd 2019
F: Nökkvi frá Syðra-Skörðugili
M: Gargandi-Snilld frá Dynjanda
![]() |
Væntanlegt 2020:
Ef allt gengur upp eigum við von á -- folöldum af Hornfirskum ættum:
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |