hetja23

IS2009255926

Litur: Svört

F: Glæsir frá Hindisvík
FF: Hjörtur frá Hindisvík
FFF: Hlöðvir frá Hindisvík

FFMF: Glóblesi 700 frá Hindisvík
FM: Litla-Jörp frá Hindisvík
FMF: Glóblesi 700 frá Hindisvík


M: Hrund frá Hindisvík
MF: Hlöðvir frá Hindisvík
MFMF: Glóblesi 700 frá Hindisvík
MM: Jarpstjarna frá Hindisvík
MMF: Glóblesi 700 frá Hindisvík


 

Hetja er hreinræktaður Hindisvíkingur allt aftur til ársins 1880 og er með nokkuð fullri vissu hægt að segja að ekkert íslenskt hross hafi svo langa sögu af stofnræktun á bak við sig, en engan aðkomuhest má finna í hennar ættartré. Hún er gríðarlega skyldleikaræktuð, en til að taka dæmi um skyldleikaræktunina (sjá mynd fyrir neðan), má nefna að móðir Hlöðvis (Ör frá Hindisvík) er alsystir móður Hjartar (Fjöður frá Hindisvík), en Hlöðvir og Hjörtur eru feðgar. Svo eru MM (Jarpstjarna) og FM (Litla-Jörp) einnig alsystur. Glóblesa gamla má einnig finna 5 sinnum í ættartré Hetju.

MYND

Mynd til útskýringar á skyldleikaræktinni sem Hetja kemur af. Sömu litir standa fyrir alsystkin eða sama hestinn.

Hetja kom til okkar vorið 2014. Hún var þá 5 vetra og ótamin. Hún var frumtamin um haustið og reyndist hún vera þæg, en viljug með hreyfingamikið brokk og opið tölt þegar eftir því var leitað.

Þess má geta að þrátt fyrir mikla skyldleikaræktun Hetju sýnir hún engin merki úrkynjunnar. Hún er stór, geðgóð og stingandi fríð.

Hetja er með frábæra fótagerð og úrvals hófa sem er eitt af ættareinkennum Hindsvíkurhrossanna.

Hún er hágeng klárhryssa með tölti.

 Afkvæmi Hetju:
 Ár Nafn Faðir Litur
 2018  Hildur  Aðall frá Nýjabæ  Dökkjörp
 2020  Hilda  Skálmar frá Nýjabæ  Svört
2022 Hildisif Lennon frá Vatnsleysu Rauð, tvístjörnótt
Hetju var ekki haldið sumarið 2022.

 

hetja17-18hetja17-10hetja17-15

hetja10hetja11hetja12

hetja13hetja14hetja15

hetja16hetja17hetja19

hetja20hetja21

hetja3hetja4hetja5