IS2014255929
Litur: Leirljós blesótt
F: Akkur frá Vatnsleysu
FF: Glampi frá Vatnsleysu (8,35)
FM: Alísa frá Vatnsleysu (8,18)
M: Glóey frá Mið-Kárastöðum
MF: Húni frá Ásbjarnarstöðum
MFF: Glæsir frá Hindisvík
MM: Blæja frá Mið-Kárastöðum
Við eignuðumst Lísu í desember 2014.
Lísa er undan Akk okkar og Glóey sem er undan Húna frá Ásbjarnarstöðum (50% Hindisvíkingur sem við áttum einu sinni).
Móðir Lísu, Glóey, var aðeins 2 vetra þegar hún eignaðist Lísu (slysafyl), auk þess sem hún kastaði síðsumars. Þessir þættir leiddu til þess að Lísa var mjög smávaxin folaldshaustið. Hún fékk mjög gott eldi heima á Sæbóli fyrstu tvo veturna og mældist fjögurra vetra um 130 cm á herðar. Lísa er sperrt, myndarleg og sýnir fallegar hreyfingar ásamt því að grípa í gang.