IS2007158508
Litur: Dökkrauðhjálmskjóttur
F: Glampi frá Vatnsleysu (8,35)
FF: Smári frá Borgarhóli (8,01)
FM: Albína frá Vatnsleysu
M: Sonata frá Vatnsleysu (8,10)
MF: Jarl frá Búðardal (8,10)
MM: Silja frá Vatnsleysu
Hæð á herðar: 145 cm (stangarmál)
Við keyptum Strák í janúar 2011. Hann er undan tveimur fyrstu verðlauna foreldrum og albróðir hans, Sjarmi, fékk m.a. 9 fyrir tölt og brokk, ásamt 8,5 fyrir fegurð í reið og vilja og geðslag. Sjarmi var bara 5.vetra gamall þegar hann fékk sína fyrstu 9 í kynbótadómi. Annar albróðir Stráks, Seðill frá Vatnsleysu, er einnig hjálmskjóttur og með 8,30 fyrir hæfileika.
Strákur er einstaklega geðgóður og hreingengur alhliðahestur með mikinn fótaburð og flottan lit.
Þar sem að Strákur er hjálmskjóttur (slettuskjóttur) mun hann gefa mikið af blesóttu, tvístjörnóttu, glaseygðu og sokkóttu. Ef hryssa er með gen fyrir litnum eru 50% líkur á að folaldið verði hjálmskjótt, en ef hún er sjálf hjálmskjótt eru 100% líkur. Meira um erfðir litarins má lesa með því að smella hér.
Afkvæmin eru auðtamin, yfirleitt með allan gang opinn frá byrjun og háan fótaburð.
Myndir af afkvæmum má skoða neðst á þessari síðu.
Strákur fór til Bandaríkjanna í júní 2019.
Strákur er líka á facebook: www.facebook.com/strakurfravatnsleysu
Strákur í maí 2015. Knapi er ræktandi Stráks, Björn á Vatnsleysu.
© Jay Toups 2018
© Jay Toups 2018
Strákur hittir fyrstu hryssur tímabilsins (2018)
Strákur 4.vetra. Þarna er hann innan við mánaðar taminn.
3 vetra
3 vetra
3 vetra
3 vetra
3 vetra
3 vetra
Strákur sem folald