Hjálmskjótta ræktunin okkar er mjög smá í sniðum og leggjum við sérstaklega áherslu á hæfileika hrossanna. Hér að neðan má lesa um hvernig þetta hófst hjá okkur, hvaða gripir hafa fæðst og hver staðan er í dag.

Þeir sem vita ekki hvað hjálmskjótt er geta fræðst um það hér.


 

Upphafið

Ekki er hægt að skrifa texta um okkar hjálmskjóttu ræktun nema að byrja á því að minnast á Ómar Runólfsson en við vorum svo heppin að hann lét til leiðast að láta okkur hafa fyrsta hjálmskjótta hrossið okkar, þegar Hanný vantaði fermingargjöf fyrir Heiðu (árið 2005). Var það hinn bleikhjálmskjótti Tengill frá Laugabóli. Fleiri hross frá Ómari fylgdu í kjölfarið og hefur það samstarf reynst okkur gríðarlega vel.

okkarhjalmskjott tengill

Tengill frá Laugabóli 2


 

Næst í hópinn kom Birta frá Smyrlabjörgum, en hún kom upprunalega til okkar í frumtamningu og við vorum svo heilluð af henni að Heiða keypti hana. Birta er bleikskjótt, hringeygð (og kom reyndar seinna í ljós að hún er arfhrein á skjótta litinn), en hún ber í sér hjálmskjótt gen sem hún fékk frá móður sinni Díönu, sem er undan Þokka frá Bjarnanesi (albróðir Snældu frá Bjarnanesi sem er m.a. móðir Klerks frá Bjarnanesi og fleiri. Þokki sjálfur hlaut á sínum tíma 8,28 í aðaleinkun, þar af 8,46 fyrir hæfileika sem klárhestur með 9,5 fyrir tölt og brokk og 9 fyrir stökk og fegurð í reið), en Þokki var einnig genberi.
okkarhjalmskjott tengill

Birta frá Smyrlabjörgum


 

Birtu var síðan haldið undir Tengil og ári síðar fæddist fyrsta hjálmskjótta folaldið úr okkar ræktun, hann Álfur frá Dynjanda. Þar sem Álfur var bæði hjálmskjóttur og venjulega skjóttur var hann mjög mikið hvítur og aðeins einn rauður blettur í taglinu á honum.

okkarhjalmskjott tengill

Álfur frá Dynjanda


 

Gríma, ein af okkar aðal hjálmskjóttu ræktunarhryssum kom til okkar sem folald með Tengli, en þau eru undan sama hesti. Hún átti að vera hjá okkur í uppeldi og frumtamningu en fór svo að við eignuðumst hana fyrst að helmingi til og síðar alla. Gríma var mjög auðtamin, með áberandi fótaburð og allan gang.

okkarhjalmskjott grima

 Gríma frá Laugabóli 2


 

Frá Ómari kom einnig hann Skrámur frá Hurðarbaki, jarphjálmskjóttur geldingur á besta aldri. Skrámur reyndist vera með betri hestum og kepptum við talsvert á honum með mjög góðum árangri. Hann vakti mikla athygli og seldist að lokum til Sviss, þar sem hann hefur líka verið farsæll á keppnisbrautinni. Við áttum undan honum hryssuna Skrámu, sem eignaðist nokkur afkvæmi með Strák frá Vatnsleysu áður en hún var seld.

okkarhjalmskjott skramur

Skrámur frá Hurðarbaki


 

Strákur frá Vatnsleysu hefur haft gríðarlega mikil áhrif á okkar hjálmskjóttu hrossarækt, en við vorum svo heppin að geta fest kaup á honum þegar hann var 3 vetra og áttum hann til 12 vetra aldurs. Hann var alltaf í mjög miklu uppáhaldi á heimilinu, enda algjör snillingur að svo mörgu leyti. Við eigum sem betur fer góðar dætur til undan honum. Eftir að Strákur kom til sögunnar á sínum tíma jukust umsvif hjálmskjóttu ræktunarinnar talsvert.

okkarhjalmskjott strakurStrákur frá Vatnsleysu


 

Staðan í dag:

Þeir gripir sem eru til hjá okkur í dag eru:

Smellið á nöfnin fyrir frekari upplýsingar, þessi hross hafa líka verið nefnd hér fyrir ofan eða koma neðar í greininni.

Stóðhestar og ógeltir:    Hryssur:  Unghross:


Ungir og ógeltir:

Fönix frá Flugumýri er jarphjálmskjóttur hestur fæddur sumarið 2017.

Faðir hans er Strákur frá Vatnsleysu og móðir er Venus frá Fjalli (MF: Orion frá Litla-Bergi). Fönix er sammæðra Glennu.

fonixhryssur-302020 © Kolbrún Grétarsdóttirfonix2      


Hryssur

Grímu frá Laugabóli 2  var búið að minnast á hér fyrir ofan. Hún hefur verið í folaldseign hjá okkur til margra ára og reynst mjög vel. Yndislegt hross í alla staði.

grima15grima

Gríma frá Laugabóli 2


Glenna frá Flugumýri er bleikhjálmskjótt hryssa sem bættist í hópinn okkar veturinn 2016. Þá á sjöunda vetur og lítið tamin. Við tömdum hana áfram í nokkrar vikur og settum hana svo beint í folaldseign um sumarið.

Örviljug og skemmtileg alhliðahryssa með frábært tölt.

okkarhjalmskjott glenna

Glenna frá Flugumýri


 Auðbjörg frá Vatnsleysu er úr síðasta árganginum undan Glampa frá Vatnsleysu og hefur erft hjálmskjótta genið frá honum. Hún er sammæðra bæði Alvör og Öddu og er alsystir Abels frá Vatnsleysu sem hlaut m.a. 9 fyrir tölt, stökk, vilja og geðslag og 8,5 fyrir brokk og fegurð í reið. Auðbjörg hefur í sér töluvert Hornfirskt blóð.

audbjorg8audbjorg1


Flauta frá Vatnsleysu er fædd 2012 og undan Sindra frá Vatnsleysu Glampasyni og hefur erft hjálmskjótta genið frá honum. Hún er myndarleg, örviljug og skrefstór alhliðahryssa sem er af gamla stofninum á Vatnsleysu og hefur talsvert af Hornfirsku blóði á bak við sig.

flauta3flauta


Þrenna er jarphjálmskjótt hryssa, fædd 2017. Foreldrar hennar eru Strákur og Glenna.

Þrenna er reiðfær. Hún sýndi bæði tölt og brokk undir knapa með flottum hreyfingum og er viljug.
threnna15threnna5



 

Unghross í uppvexti

 Sprengja er rauðhjálmskjótt hryssa fædd 2019. Hún er vel þroskuð og sýnir bæði tölt og brokk með fallegum hreyfingum. 

Faðir hennar er Strákur frá Vatnsleysu. Móðir hennar er Síðasta-Öld frá Melaleiti sem er undan Glámi frá Hofsósi og Veru frá Kópavogi (8,04)
sprengja3sprengja


Vanda er jarphjálmskjótt hryssa fædd 2021.
F: Fönix frá Flugumýri
M: Gríma frá Laugabóli 2
vanda5vanda1


Væntanlegt 2022:

Ef allt gengur eftir eigum við von á þremur hjálmskjóttum folöldum, einu sem eru 50% líkur á að verði hjálmskjótt og svo gætu komið einhverjir genberar.

fonix-grima

Fönix frá Flugumýri   x   Gríma frá Laugabóli (100% hjálmskjótt)

fonix-flauta

Fönix frá Flugumýri   x   Flauta frá Vatnsleysu  (50% líkur á hjálmskjóttu)

fonix-glenna

Eldon frá Varmalandi   x   Glenna frá Flugumýri  (100% hjálmskjótt)

fonix-threnna

Eldon frá Varmalandi   x   Þrenna frá Hindisvík  (100% hjálmskjótt)


 

Fleiri hjálmskjótt hross og genberar sem við höfum átt í gegn um tíðina

Smellið á myndirnar til að stækka þær og lesa umsögn